Hoppa í meginmál
Persónuleg málefni

LGBTQAI+

Meðlimir LGBTQAI+ samfélagsins hafa sama rétt og allir aðrir til að skrá sig í sambúð.

Samkynhneigðir sem eru í hjúskap eða skráðri sambúð mega ættleiða börn eða eignast börn með tæknifrjóvgun að uppfylltum þeim almennum skilyrðum sem gilda um ættleiðingu barna. Þeir hafa sama rétt og aðrir foreldrar.

Samtökin '78 - Hagsmunasamtök alls hinsegin fólks

Samtökin ’78 eru landssamtök, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks. Tilgangur þeirra er að tryggja að lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir, ókynhneigðir, pankynhneigðir, intersex, transfólk og annað hinsegin fólk sé sýnilegt, viðurkennt og njóti fullra réttinda í íslensku samfélagi, óháð uppruna.

Samtökin bjóða upp á kynningar, vinnustofur og þjálfunaráætlanir fyrir skólahópa, fagfólk, vinnustaði og aðrar stofnanir. Þau bjóða einnig upp á ókeypis félagslega ráðgjöf fyrir hinsegin fólk, fjölskyldur þeirra sem og fagfólk. Ráðgjöfin er ókeypis og algjört trúnaðarmál. Að auki er boðið upp á ókeypis lögfræðiaðstoð um réttindi hinsegin fólks.

Jafnrétti

Myndbandið er búið til af Amnesty International á Íslandi og Mannréttindaskrifstofu Íslands. Fleiri myndbönd má finna hér.

 

Gagnlegir hlekkir

Það eru bara ein hjúskaparlög á Íslandi og gilda þau jafnt um karl og konu, tvær konur og tvo karla.